

Það þyrmir yfir marga þegar talið berst að því að undirbúa starfslok og sumum finnst jafnvel alltof snemmt að spá í slíku. En það er nefnilega aldrei of seint að byrja og margt sem getur breyst í daglega lífinu eftir að staðan er komin á hreint. Fólk jafnvel byrjar að hlakka til starfslokanna.
Margir hverjir vilja taka tvo fundi með óháðum ráðgjafa til að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Viltu láta draumana rætast?
Fyrsti fundur snýst um að átta sig á stöðunni, fara yfir réttindi í öllum sjóðum og hvaða leiðir er hægt að fara til að auka ráðstöfunartekjur þegar að starfslokum kemur til að viðskiptavinur geti látið drauma sína rættast. Hljómar það ekki vel?Látum verkin tala
Annar fundur snýst um aðgerðir. Eftir fyrsta fund fá flestir viðskiptavinir einfaldan aðgerðalista á mannamáli til að íhuga og/eða ræða sín á milli. Þessi listi byggir á stöðu viðkomandi án aðgerða og hvort sú niðurstaða sé ásættanleg eða ekki. Einnig er því velt upp hvort hægt sé að gera endurbætur til að auka ráðstöfunartekjur við starfslok á þeim árum sem mestu máli skipta. Ef hægt er að betrumbæta stöðu viðskiptavinar þá snýst annar fundur um að framkvæma þær aðgerðir sem taldar eru nauðsynlegar.Hefur þú efni á því?
Vissir þú að þeir sem sækja óháða lífeyrisráðgjöf hafa að öllu jöfnu mun hærri ráðstöfunartekjur þegar að starfslokum er komið? Vissir þú að undirbúningur starfsloka felst ekki eingöngu í fjárhgalegri heldur líka í líkamlegri og andlegri heilsu? Vissir þú að margir vinna lengur en þeir óska eða þurfa vegna ótta eða fjárhaglegs óöryggis vegna þess að þeir þekkja ekki réttindi sín? Vissir þú að Íslendingar vinna þjóða lengst, sem þýðir færri ár með góða heilsu eftir starfslok?Hvað ætlar þú að gera þegar þú hættir að vinna?