

Það hefur reynst mörgum áfall að hætta að vinna, en því áfalli er vel hægt að afstýra með því að undirbúa sig vel.
Sigurður hefur verið að þróa aðferðarfræðina Þrjú þrep til fjárhagslegs öryggis síðustu áratugina og hefur hún reynst fólki gríðarlega vel sem er að undirbúa starfslok.
En hvað gerist þegar þú hættir að vinna?
1. Launin þín hætta að berast – þú hefur núna engar launatekjur
- Þú hefur núna aðeins tekjur af þeim sparnaði og eignamyndun sem þú bjóst til þegar þú varst vinnandi.
- Því er nauðsynlegt að undirbúa starfslokin í tíma.
2. Frítími þinn eykst – núna áttu bara frímtíma
- Eyðsla flestra er hærri í frímtíma en vinnu, eins og allir þekkja.
Eftir fund með Sigurði Sigurbjörnssyni á viðskiptavinur að vera vel upplýstur um stöðu lífeyrisréttinda sem hann hefur áunnið sér á starfsævinni, möguleikum sem hann hefur til að hækka mánaðarlegar ráðstöfnunartekjur, sérstaklega á fyrstu árum lífeyristöku. Árunum þar sem heilsa er líkast til góð og á þeim árum sem hann ætlar sér að:
„Lifa, Leika og Njóta“.
Því mælir Sigurður með að hugsa fjárhagslegt öryggi á eftirlaunaárum í þremur þrepum:
Þrep 1. Lífeyrissjóðir – samtrygging og almannatryggingar
Greiðsla úr samtryggingarhluta lífeyrissjóða sem oftast er í formi réttindarávinnslu sem vinnandi maður ávann sér í gegnum starfsævi sína og greiðslur úr Almannatryggingum er fyrsta þrepið. Ástæðan fyrir því er sú að þessar greiðslur eru greiddar til æviloka. Greiðslurnar eru grunnurinn að því sem aðferðarfræðin um Þrjú þrep til fjárhagslegs öryggis byggir á. Í flestum tilvikum duga þessar greiðslur til lágmarksframfærslu.
Þrep 2. Séreignir af skyldusparnaði í lífeyrissjóðum og viðbótarlífeyrissparnaður
Séreignir í skyldusparnaði til lífeyrissjóða, geta verið:
- Frjáls séreign
- Tilgreind séreign
- Bundin séreign
Séreign, hvaða nafni sem hún nefnist, er fjárhagsleg eign sem sjóðfélagi á persónulega. Eign sem er ekki aðfararhæf og erfist að fullu við fráfall.
Séreignir hafa mismunandi skerðingaráhrif hvað varðar greiðslur Almannatrygginga og ávallt þarf að greiða tekjuskatt af útgreiðslum séreignar hvaða nafni sem þær nefnast.
Viðbótarlífeyrissparnaður er líka séreign en er ekki séreign af skyldusparnaði og skerðir samvkæmt gildandi lögum ekki greiðslur frá Almannatryggingum auk þess sem heimilt er að nota ákveðna upphæð á ári til greiðslu inn á áhvílandi lán á þeirri fasteign sem sjóðfélagi á og býr í enda hafi hann lögheimili á þeim stað. Sú greiðsla er undanþegin tekjuskatti.
Þrep 3. Aðrar fjárhagslegar eignir sem sjóðsfélagi hefur komið sér upp, til dæmis sparnaður og tekjuskapandi eignir
Eignir í þessu þrepi geta haft áhrif á greiðslur á fyrsta þrepi en eru mikilvægur þáttur í Þremur þrepum að fjárhagslegu öryggi.
Viðskiptavinir okkar eru misvel settir hvað þetta varðar og kannaðir eru möguleikar til að byggja upp þriðja þrepið og hugsanlega hagræða. Það er nefnilega ýmislegt hægt þegar að óháður sérfræðingur lítur yfir málið.